VERKEFNI
Smellið á myndina til að skoða stærri
Mars 2017
Myndasyrpa af Finnbirni ÍS 68 breikkuðum að aftan.
Dráttarbáturinn Hamar frá Hafnarfirði
Dráttarbáturinn Hamar kom til okkar 9.nóvember.2020 í almálun og var byrjað á því að smíða krossvið í glugga og hurðaop til að verja glugga og hurðir skemdum vegna háþrýstiþvottar, en báturinn er vatnsblásinn og er þrýstingurinn 3000 bör til að fjarlægja alla málningu af skrokk og yfirbyggingu. Einnig þurfti að taka fendera af svo unnt sé að mála undir þeim. Síðan eru fenderar settir á aftur og þeim pakkað inn áður en skrokkur er málaður.
Ljósmyndir : Gunnar Richter
Karina E frá Grænlandi
Karina E kom til okkar í október 2016 og fór til Grænlands aftur í janúar 2017.
Karina E var lengd um 4 metra í stöðinni hjá okkur , einnig var skipt um plötur í byrðing og stefni sem skemdust eftir árekstra við ís við Grænland
Hólmasól
Hólmasól kom til okkar í breytingu fyrir hvalaskoðun ferðamanna. Báturinn var málaður og gerður klár fyrir ferðamenn.
Guðbjörg ÍS 508
Guðbjörgin var heilmáluð í skipaskýli okkar eftir að lokið var við ýmis viðhaldsverkefni.
Stafnesi KE 130
Stafnesið kom upp þann 6. október 2012, viku síðar fór það aftur á flot nýmálað og strokið.
Farsæll GK162
Í september 2012 var Farsæll GK162 háþrýstiþveginn og málaður.
Ýmis verkefni
Sædís Bára og Ragnar Alfreðs fengu hjá okkur húsaskjól. Þarna er einnig Fagranesið (Tony) sem við eigum.
Það þarf einnig að hreinsa tanka í skipum þó það sé frekar subbulegt starf.